Körfubolti

Gunnar æfði með Keflavík í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir
Gunnar Ólafsson, fyrrum leikmaður Keflavíkur, æfði með liðinu í dag en hann er staddur hér á landi í fríi frá háskólanámi sínu í Bandaríkjunum.

Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, sagði að Gunnar hefði mætt óvænt á æfingu í dag á meðan hann væri í stuttu frí á Íslandi. Gunnar er leikmaður St. Francis-háskólans vestanhafs.

„Hann spilar ekki á morgun,“ sagði Sigurður aðspurður hvort það kæmi til greina að Gunnar myndi spila með Keflavík gegn Tindastóli í úrslitakeppni Domino's-deildar karla á morgun.

Keflavík er 2-0 undir í rimmunni gegn Tindastóli og er úr leik með tapi á heimavelli á morgun. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×