Jakob og félagar gengu á vegg í fyrsta leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2016 18:47 Jakob Sigurðarson. Vísir/Andri Marinó
Íslenski landsliðsbakvörðurinn Jakob Sigurðarson og félagar í Borås Basket eru lentir 1-0 undir í undanúrslitaeinvígi sinu í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Borås Basket tapaði með 18 stigum í kvöld á útivelli á móti gríðarlega sterku liði Södertälje Kings, 79-61. Jakob Sigurðarson var með 6 stig, 1 frákast og 1 stoðsendingu á 29 mínútum í leiknum í kvöld. Hann hitti úr 3 af 7 skotum sínum en tókst ekki að skora þrist. Södertälje Kings hefur þar með unnið fjóra fyrstu leiki sína í úrslitakeppninni en liðið sló Malbas út 3-0 í átta liða úrslitunum. Borås-liðið gekk á vegg í fyrsta leikhlutanum sem liðið tapaði 22-8 og leikmenn Södertälje Kings voru síðan komnir 24 stigum yfir í hálfleik, 49-25. Það var því ljóst strax í hálfleik að Södertälje Kings var að fara halda sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppninni. Fyrstu tveir leikirnir fara fram í Täljehallen, heimavelli Södertälje Kings, en leikur tvö er á laugardaginn.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira