Handbolti

Karen markahæst í sigri Nice

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Karen skoraði 12 mörk í einvíginu gegn Besancon.
Karen skoraði 12 mörk í einvíginu gegn Besancon. vísir/ernir
Karen Knútsdóttir var markahæst hjá Nice þegar liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum frönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld.

Nice vann þá tveggja marka sigur á Besancon, 27-25, í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum. Nice vann fyrri leikinn sömuleiðis, 24-19.

Karen skoraði sjö mörk fyrir Nice í kvöld en landsliðsfyrirliðinn var einnig markahæst í liðinu í fyrri leiknum með fimm mörk.

Arna Sif Pálsdóttir komst ekki á blað í leiknum í kvöld, frekar en í fyrri leiknum.

Í undanúrslitunum mætir Nice deildarmeisturum Metz.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×