Körfubolti

Geggjuð sigurkarfa hjá Hauki Helga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson var hetja Njarðvíkinga í kvöld er hann tryggði liðinu sigur á KR í Ljónagryfjunni.

Það var jafnt á með liðunum, 86-86, er Njarðvík fór í sína síðustu sókn í kvöld.

Haukur Helgi tók boltann, fór í átt að Darra Hilmarssyni og lét skotið vaða. Beint ofan í rétt eins og hann gerði í tvígang á ögurstundu í fyrsta leik liðanna. Þá dugði það ekki til sigurs en það gerði það núna.

Sjá einnig: Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík-KR 88-86 | Staðan jöfn eftir magnaða endurkomu Njarðvíkinga

KR náði ekki að nýta sína lokasókn og Njarðvíkingar fögnuðu því sætum sigri en þeir voru um tíma 24 stigum undir. Endurkoma sem mun seint gleymast hjá stuðningsmönnum Njarðvíkur.

Staðan í einvígi liðanna er því 1-1 og næsti leikur liðanna er á heimavelli KR.

Körfuna má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×