Körfubolti

Hrafn framlengdi við Stjörnuna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hrafn Kristjánsson.
Hrafn Kristjánsson. vísir/vilhelm
Hrafn Kristjánsson skrifaði í kvöld undir nýjan samning við Stjörnumenn.

Hann var samningslaus en er búinn að skrifa undir tveggja ára samning.

Hrafn tók við liðinu árið 2014 og gerði Stjörnuna að bikarmeisturum strax á fyrsta ári.

Í ár náði liðið sínum besta árangri frá upphafi í deildinni en féll úr leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir oddaleik gegn Njarðvík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×