Fullkomnir fjórir vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. apríl 2016 17:30 Breanna Stewart fagnar hér með félögum sínum. Vísir/Getty
Breanna Stewart og félagar hennar í UConn, University of Connecticut, urðu í nótt bandarískir háskólameistarar í körfubolta en UConn-stelpurnar unnu þá sögulegan sigur. UConn-liðið hafði mikla yfirburði í úrslitaleiknum í nótt og vann þar 82-51 sigur á Syracuse-háskólanum. Þetta var fjórða árið í röð sem UConn vinnur titilinn og alls í ellefta sinn í sögu skólans. Breanna Stewart var valin best fjórða úrslitaleikinn í röð sem hafði aldrei gerst áður í karla- eða kvennaflokki. Það hafði líka heldur aldrei gerst að leikmenn hafi orðið bandarískir háskólameistarar fjögur ár í röð en því náði Breanna Stewart ásamt liðsfélögum sínum Moriah Jefferson og Morgan Tuck. UCLA vann reyndar sjö titla í röð í karlaboltanum frá 1967-73 en á þeim árum máttu leikmenn á fyrsta ári ekki vera með. Það náði því enginn að vinna fjóra titla á þeim árum. Breanna Stewart var með 24 stig, 10 fráköst, 6 stoðsendingar og 3 varin skot í úrslitaleiknum og endaði með 2676 stig, 1179 fráköst, 426 stoðsendingar og 414 varin skot á háskólaferli sínum. Fjórföldu meistararnir voru heldur betur í aðalhlutverki í leiknum því Morgan Tuck var með 19 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar og Moriah Jefferson var með 13 stig og 5 stoðsendingar. Saman voru þær þrjár því með 56 stig, 20 fráköst og 16 stoðsendingar í úrslitaleiknum. Geno Auriemma, þjálfari UConn-liðsins, varð um leið fyrsti þjálfarinn til að vinna ellefu titla í bandaríska háskólaboltanum en fyrir leikinn var hann jafn John Wooden með tíu. Það þykir nær öruggt að Breanna Stewart verði valin fyrst í WNBA-nýliðavalinu sem er framundan en næst á dagskrá hjá henni er atvinnumannaferill og að reyna að komast í Ólympíulið Bandaríkjanna fyrir leikana í Ríó í ágúst.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira