Körfubolti

Finnur Freyr: Mikið gert úr viðtölum við Brynjar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Brynjar Þór í leiknum í kvöld.
Brynjar Þór í leiknum í kvöld. Vísir/Ernir
KR vann sannfærandi sigur á Haukum og komst í 1-0 forystu í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn.

Fyrirliðinn Brynjar Þór Björnsson er ófeiminn við að láta skoðun sína í ljós í viðtölum við fjölmiðla og Finnur segir að það hafi haft áhrif á hann í kvöld en Brynjar Þór var stigahæstur í liði KR í kvöld með 20 stig þrátt fyrir rólega byrjun.

„Hann var kannski svolítið ofurpeppaður í upphafi leiks. Það er náttúrlega búið að gera mikið úr viðtölum við hann og hann dansar alltaf á línunni. Hann segir hlutina eins og þeir eru og er búinn að vinna fimm titla en ég mér finnst aðeins of mikið gert úr þessu.

„Hann var flottur í dag og kom okkur af stað eins og sannur fyrirliði,“ sagði Finnur að endingu.

Nánari umfjöllun og fleiri viðtöl má finna hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×