Körfubolti

53 stiga munur á liðunum í tveimur leikjum í vetur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hjálmar Stefánsson sækir að körfu KR í síðasta leik liðanna.
Hjálmar Stefánsson sækir að körfu KR í síðasta leik liðanna. Vísir/Hanna
Haukar þurfa að gera talsvert mikið betur á móti KR í úrslitaeinvíginu en þeir gerðu í deildarkeppninni ætli Haukaliðið að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í 28 ár.

KR tekur á móti Haukum í kvöld í fyrsta leik liðanna í lokaúrslitum Domino´s deildar karla en leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfuboltakvöldið hefst klukkan 18.40 og gerir einnig upp leikinn að honum loknum.

KR vann báða deildarleiki liðanna með miklum yfirburðum, 23 stiga sigur á Ásvöllum í október og 30 stiga sigur í DHL-höllinni í janúar.

Haukarnir voru bara fimm stigum undir í hálfleik í fyrri leiknum en KR-ingar stigu á bensíngjöfina í þeim síðari sem þeir unnu með 18 stigum (45-27). Haukaliðið skoraði þá bara 7 stig í lokaleikhlutanum.

Michael Craion var með 24 stig, 13 fráköst, 6 stoðsendingar og 4 stolna bolta í liði KR, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skoraði 14 stig á rúmum 15 mínútum og Pavel Ermolinskij bætti við 13 stigum, 11 fráköstum og 8 stoðsendingum.

Alls skoruðu sex KR-ingar yfir tíu stig því það gerðu Brynjar Þór Björnsson (11), Darri Hilmarsson (10) og Ægir Þór Steinarsson (10) einnig. Stephen Michael Madison skoraði 25 stig fyrir Hauka og Kári Jónsson var með 18 stig.

KR-ingar stungu Haukana af strax í fyrsta leikhluta í seinni leiknum í DHL-höllinni en KR-liðið vann fyrsta leikhlutann þá 30-11. Haukarnir lögðu aðeins stöðuna í öðrum og þriðja leikhluta en KR kom muninum upp í 30 stig með því að vinna lokaleikhlutann 32-15.

Aftur skoruðu sex KR-ingar tíu stig eða meira og þeir voru allir að skora á bilinu 10 til 17 stig. Michael Craion var með 17 stig á 25 mínútu og þeir Brynjar Þór Björnsson og Helgi Már Magnússon skoruðu báðir 14 stig.

Pavel Ermolinskij var með 11 stig, 14 fráköst og 9 stoðsendingar og þeir Snorri Hrafnkelsson og Darri Hilmarsson skoruðu báðir tíu stig.

Kári Jónsson og Brandon Mobley voru stighæstir hjá Haukum með 15 stig og Finnur Atli Magnússon skoraði 11 stig.

Haukarnir voru bara með Brandon Mobley í seinni leiknum og þá var hann nýkominn inn í liðið. Ægir Þór Steinarsson spilaði líka báða leikina með KR. Það eru því ekki sömu lið sem eru að fara spila til úrslita og léku deildarleikina í vetur.

Haukarnir vöknuðu við þetta tap út í KR og svöruðu með því að vinna átta síðustu deildarleiki sína og ná fjórða sætinu. Haukarnir hafa síðan unnið 6 af 8 leikjum sínum í úrslitakeppninni.  Þetta þýðir að Haukar hafa unnið 14 af 16 leikjum sínum á Íslandsmótinu síðan að þeir mættu KR fyrir þremur mánuðum.


Tengdar fréttir

„Helgi getur étið það sem úti frýs“

Bræðurnir Helgi Már og Finnur Atli Magnússynir munu mætast í úrslitaeinvígi Domino's-deildar karla. Þeir verða sérstaklega nánir allt einvígið enda eru þeir báðir á hótel mömmu þessa dagana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×