Handbolti

Aron búinn að semja við Álaborg

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron við undirritun samningsins í hádeginu.
Aron við undirritun samningsins í hádeginu. mynd/aalborg
Aron Kristjánsson, fyrrum landsliðsþjálfari, skrifaði í hádeginu undir samning við danska liðið Aalborg.

Aron skrifaði undir tveggja ára samning. Hann hefur verið atvinnulaus síðan hann hætti sem þjálfari íslenska landsliðsins í lok janúar.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Aron þjálfar í Danmörku en hann hefur bæði stýrt Skjern og Kolding í dönsku úrvalsdeildinni.

Aron mun taka við stjórnartaumunum hjá félaginu í sumar en með því leikur Ólafur Gústafsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×