Handbolti

Ólafur markahæstur í sigri Kristianstad

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur hefur fundið sig vel hjá Kristianstad eftir vistaskiptin frá Hannover-Burgdorf.
Ólafur hefur fundið sig vel hjá Kristianstad eftir vistaskiptin frá Hannover-Burgdorf. vísir/afp
Ólafur Guðmundsson var markahæstur í liði Kristianstad sem vann fjögurra marka sigur, 29-25, á Redbergslids í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Ólafur skoraði sjö mörk úr tíu skotum og átti auk þess tvær stoðsendingar á félaga sína.

Kristianstad vann sænska deildarmeistaratitilinn með miklum yfirburðum og Ólafur og félagar virðast ekki ætla að gefa neitt eftir í úrslitakeppninni.

Það gekk ekki jafn vel hjá lærisveinum Kristján Andréssonar í Guif en þeir töpuðu 23-18 fyrir Alingsås á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×