Körfubolti

Sjáðu dramatíska lokasókn Tindastóls

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Síkið á Sauðárkróki hreinlega nötraði í gær í spennuleik Tindastóls og Hauka í undanúrslitum Dominos-deildar karla.

Haukar leiddu með tveim stigum, 68-70, er Tindastóll fór í lokasókn leiksins.

Það var teiknað upp kerfi fyrir Svavar Atla Birgisson sem keyrði upp að körfunni en skot hans geigaði. Svavar náði aftur á móti frákastinu og kom boltanum á Helga Frey Margeirsson sem setti niður ævintýralegt þriggja stiga skot um leið og leiktíminn kláraðist.

Dómarar þurftu að fá fullvissu um að leiktíminn væri liðinn og fengu að sjá endurtekningu hjá lýsurum Stöðvar 2 Sport. Þar kom í ljós að skot Helga fór of seint í loftið og Haukar því komnir í úrslit.

Sjá má sóknina hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×