Handbolti

Sävehof tryggði sér oddaleik | Guif úr leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmenn Sävehof fagna sigrinum á Lugi í kvöld.
Leikmenn Sävehof fagna sigrinum á Lugi í kvöld. mynd/facebook-síða sävehof
Sävehof jafnaði metin í einvíginu við Lugi í 8-liða úrslitum um sænska meistaratitilinn í handbolta með þriggja marka sigri, 27-24, í fjórða leik liðanna í kvöld.

Atli Ævar Ingólfsson komst ekki á blað hjá Sävehof sem vann fyrsta leikinn í einvíginu en tapaði þeim tveimur næstu. Oddaleikur Sävehof og Lugi fer fram á föstudaginn.

Kristján Andrésson og lærisveinar hans í Guif eru úr leik eftir eins marks tap, 20-21, fyrir Alingsås á heimavelli.

Alingsås vann einvígið 3-1 og er komið áfram í undanúrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×