Fótbolti

Draumaúrslitaleikur í Þýskalandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Dortmund fagna í kvöld.
Leikmenn Dortmund fagna í kvöld. Vísir/Getty
Tvö efstu lið þýsku úrvalsdeildarinnar, Bayern München og Dortmund, eigast við í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í vor.

Dortmund tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum með 3-0 sigri á Herthu Berlin í þýsku höfuðborginni.

Gonzalo Castro, Marco Reus og Henrikh Mkhitaryan skoruðu mörk þeirra gulklæddu í kvöld en tvö síðustu mörkin komu á síðasta stundarfjórðungnum.

Úrslitaleikurinn fer einmitt fram á Ólympíuleikvanginum í Berlín, þar sem spilað var í kvöld, þann 21. maí.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×