Sundsvall lýsir yfir gjaldþroti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. maí 2016 11:39 Hlynur og Pau Gasol í leik Íslands og Spánar á EuroBasket 2015. vísir/valli
Sænska körfuboltaliðið Sundsvall Dragons, sem landsliðsfyrirliðinn Hlynur Bæringsson leikur með, óskaði í dag eftir að vera tekið til gjaldþrotaskipta að því er fram kemur í frétt sænska ríkissjónvarpsins. Sundsvall hefur verið í miklum fjárhagskröggum og eftir að hafa farið yfir fjármál félagsins tók ný stjórn félagsins þá ákvörðun að óska eftir að það yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Framtíð Sundsvall og Hlyns er því í óvissu en landsliðsmaðurinn skrifaði undir nýjan fimm ára samning við félagið síðasta sumar. Í samtali við Fréttablaðið í mars sagði Hlynur að þetta tímabil hafi verið það efiðasta síðan hann gekk til liðs við Sundsvall 2010. Fyrr í vetur missti Hlynur t.a.m. af leik í sænsku deildinni vegna þess að Sundsvall gat ekki staðið við greiðslu til sænska körfuknattleikssambandsins og var því meinað að nota erlenda leikmenn sína í einum leik. Sundsvall endaði í 6. sæti í deildinni í vetur og tapaði svo 3-1 fyrir Norrköping Dolphins í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Hlynur var með 14,2 stig og 10,1 fráköst að meðatali í leik í vetur en hann var næstfrákastahæsti leikmaður sænsku deildarinnar.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira