Sylvía meðal efstu leikmanna í nokkrum tölfræðiþáttum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júlí 2016 18:00 Sylvía í leik með Haukum í vetur. vísir/anton
Stelpurnar í U-18 ára landsliðinu í körfubolta mæta Grikklandi í undanúrslitum B-deildar Evrópumótsins í kvöld.Ísland vann góðan 17 stiga sigur, 85-68, á Hvíta-Rússlandi í gær og hefur því unnið fjóra af fimm leikjum sínum á EM. Eina tapið kom gegn heimaliðinu, Bosníu. Íslensku stelpurnar hafa spilað einstaklega vel á EM, þó sennilega engin betur en Haukastelpan Sylvía Rún Hálfdanardóttir sem er á meðal efstu leikmanna í nokkrum tölfræðiþáttum á mótinu. Sylvía hefur skorað 17,0 stig að meðaltali í leik og er í 4. sæti yfir stigahæstu leikmenn EM. Aðeins Melisa Brcaninovic frá Bosníu (23,0), Elena Tsineke frá Grikklandi (19,6) og Lena Elisabeth Svanholm frá Danmörku (19,0) hafa skorað meira.Íslenska U-18 ára liðið.mynd/kkíSylvía er í 3. sæti yfir frákastahæstu leikmenn mótsins, með 11,0 fráköst að meðaltali í leik. Liðsfélagi hennar, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir, er í 4. sætinu á frákastalistanum með 10,2 fráköst að meðaltali í leik. Sylvía er í 2. sæti þegar kemur að stolnum boltum. Hún hefur stolið 3,8 boltum að meðaltali í leik en hin finnska Lotta-Maj Lahtinen er sú eina sem hefur stolið fleiri boltum í leik (4,6). Sylvía er í 4. sæti á listanum yfir flest framlagsstig en hún er með 21,2 slík að meðaltali í leik. Þá er hún í 6. sæti á listanum yfir varin skot (1,2) og flestar mínútur að meðaltali í leik (33,1). Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:00. Með sigri tryggja íslensku stelpurnar sér sæti í úrslitaleiknum og um leið sæti í A-deild Evrópumótsins. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Bosnía og Svíþjóð.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira