Handbolti

Afmælisbarnið Guðjón Valur kom með veislu í búningsklefann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/skjáskot
Guðjón Valur Sigurðsson fagnar 37 ára afmæli sínu í dag og hélt hann upp á það með því að bjóða liðsfélögum sínum hjá Rhein-Neckar Löwen upp á veislu í búningsklefanum.

Alexander Petersson, semherji hans hjá þýsku ljónunum og í íslenska landsliðinu, tók stutt myndband af veisluborðinu sem má sjá hér fyrir neðan.

Guðjón Valur er nýkominn aftur til Löwen eftir að hafa verið á mála hjá félaginu fyrst á árunum 2008 til 2011. Hann kom til Löwen frá Barcelona eftir síðustu leiktíð.

Til hamingju með daginn, Guðjón Valur!




Fleiri fréttir

Sjá meira


×