Fimmtán ára valdatíð Onesta lokið Henry Birgir Gunnarsson skrifar 29. september 2016 11:00 Onesta eftir sinn síðasta leik með franska liðið á ÓL í Ríó. vísir/getty
Franska goðsögnin Claude Onesta hætti formlega sem þjálfari franska handboltalandsliðsins í gær. „Þetta er þróunin en engin bylting,“ sagði hinn sigursæli Onesta á blaðamannafundi í gær. Þessi 59 ára þjálfari er hættur eftir heil 15 ár með franska landsliðið. Aðstoðarmaður hans síðustu ár, Didier Dinart, er tekinn við en hann var lengi í landsliðinu hjá Onesta. Sjálfur mun Onesta verða framkvæmdastjóri landsliðsins og Dinart getur því leitað til hans er á þarf að halda. Aðstoðarþjálfari verður annar fyrrum landsliðsmaður, Guillaume Gille. Onesta mun sjá um mikil samskipti við fjölmiðla og styrktaraðila. „Það er best ef Dinart og Gille geta einbeitt sér bara að boltanum. Svo mun ég hætta á einhverjum tímapunkti og þá verða þeir orðnir klárir í að taka við öllum pakkanum,“ sagði Onesta. Þessi ákvörðun kemur mörgum á óvart og ekki síst á þessum tímapunkti þar sem það eru 100 dagar í að HM hefjist í Frakklandi. Margir áttu von á því að Onesta myndi kveðja á því móti. Kveðja á heimavelli. „Þetta er vissulega áhætta en það hefðu verið okkar mistök að taka enga áhættu. Okkur hefur fundist að þetta sé rétti tímapunkturinn til að gera þessar breytingar,“ sagði Onesta og bætir við að hann ætli að gefa nýju þjálfurunum frið í sinni vinnu.
Handbolti Tengdar fréttir Sigurvegari stígur frá borði Claude Onesta er hættur sem þjálfari franska handboltalandsliðsins. Hann staðfesti þetta í samtali við L'Equipe. 23. september 2016 12:18 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Sjá meira
Sigurvegari stígur frá borði Claude Onesta er hættur sem þjálfari franska handboltalandsliðsins. Hann staðfesti þetta í samtali við L'Equipe. 23. september 2016 12:18