Handbolti

Fimm íslensk mörk þegar Löwen tapaði í Hvíta-Rússlandi

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Guðjón Valur var í tapliði í dag
Guðjón Valur var í tapliði í dag vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen varð að sætta sig við tveggja marka tap gegn Mashkov Brest í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag 30-28.

Brest var 17-12 yfir í hálfleik og þó Löwen hafi náð að minnka forystu hvít-rússneska liðsins niður í þrjú mörk þegar tvær mínutur voru eftir náði þýska stórliðið ekki að jafna metin.

Alexander Petersson skoraði 3 mörk fyrir Löwen og Guðjón Valur Sigurðsson 2 en Svíinn Kim Ekdahl du Rietz fór á kostum með 11 mörk í leiknum fyrir Löwen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×