Körfubolti

Bonneau mættur til leiks

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bonneau er mikill skemmtikraftur á velli.
Bonneau er mikill skemmtikraftur á velli. vísir/stefán
Bandaríkjamaðurinn Stefan Bonneau er kominn aftur á ferðina eftir erfið meiðsli.

Njarðvík tekur á móti Keflavík í 1. umferð Domino's deildar karla og þegar sjö mínútur voru liðnar af leiknum kom Bonneau inn á við mikinn fögnuð áhorfenda í Ljónagryfjunni.

Bonneau sleit hásin í annað sinn á innan við ári í öðrum leik Njarðvíkur og Stjörnunnar í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar 21. mars síðastliðinn.

Bonneau entist aðeins í þrjár mínútur og 37 sekúndur áður en hann haltraði af velli og beint inn til búningsherbergja. Vonandi kemur ekkert slíkt fyrir í leiknum í kvöld.

Hægt er að fylgjast með leik Njarðvíkur og Keflavíkur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD og í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×