Handbolti

Atli Ævar skoraði þrjú í þriðja sigri Sävehof í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Atli Ævar skoraði þrjú mörk gegn gömlu félögunum.
Atli Ævar skoraði þrjú mörk gegn gömlu félögunum. mynd/heimasíða guif
Atli Ævar Ingólfsson og félagar hans í sænska handboltaliðinu Sävehof unnu sinn þriðja leik í röð þegar þeir fengu Guif í heimsókn í kvöld.

Leiknum lyktaði með sex marka sigri Sävehof, 30-24, sem er í 4. sæti sænsku deildarinnar.

Atli skoraði þrjú mörk í leiknum í dag en hann hefur verið nokkuð rólegur í markaskorun það sem af er tímabili. Hann lék áður með Guif og mætti því sínum gömlu félögum í kvöld.

Guif komst í 0-2 en þá tóku leikmenn Sävehof leikinn yfir, byggðu jafnt og þétt upp gott forskot og í hálfleik munaði fimm mörkum á liðunum, 17-12.

Sävehof var áfram með undirtökin í seinni hálfleik og vann að lokum sex marka sigur, 30-24.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×