Körfubolti

Körfuboltakvöld: "Er ekki allt í lagi með þig?"

Anton Ingi Leifsson skrifar
Félagarnir ræða málin í gær.
Félagarnir ræða málin í gær. vísir/skjáskot
Það var mikið fjör í Körfuboltakvöldi í gær, en þar var síðasta umferð í Dominos-deildunum rædd í þaula.

Getir gærkvöldsins voru þeir Jón Halldór Eðvaldsson og Fannar Ólafsson, en Kjartan Atli Kjartansson stýrði þættinum af sinni alkunnu snilld. Margt bar á góma í þættinum í gær.

Í Framlengingunni í gær var rætt um hvort að Stjarnan ætti að skipta um kana, hvort Þórs liðið endar ofar, hver sé besti leikstjórnandinn, hvað sé besta varnarliðið og að lokum hvort Stólarnir séu vaknaðir.

Framlenginguna má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×