Martin stoðsendingahæstur í sigri Charleville Mezieres | Sigrar hjá Íslendingaliðunum á Spáni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. nóvember 2016 22:31 Martin gaf níu stoðsendingar í leiknum í kvöld. vísir/ernir
Martin Hermannsson stóð fyrir sínu þegar Charleville Mezieres vann níu stiga útisigur, 70-79, á Evreux í frönsku B-deildinni í körfubolta í kvöld. Martin skoraði 15 stig og var þriðji stigahæsti leikmaður Charleville Mezieres. Íslenski landsliðsmaðurinn hitti úr fjórum af tíu skotum sínum utan af velli og sex af sjö vítaskotum hans fóru rétta leið. Martin tók auk þess þrjú fráköst og gaf níu stoðsendingar. Enginn leikmaður á vellinum gaf fleiri stoðsendingar en Martin í leiknum. Með sigrinum komst Charleville Mezieres upp í 3. sæti deildarinnar en liðið hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum á tímabilinu. Haukur Helgi Pálsson kom ekkert við sögu þegar Rouen tapaði, 69-78, fyrir Denain-Voltaire á heimavelli í sömu deild. Rouen er í 15. sæti með aðeins einn sigur eftir fyrstu fjórar umferðirnar. Íslendingaliðin í spænsku B-deildinni hrósuðu bæði sigri í leikjum sínum í kvöld. Ægir Þór Steinarsson skoraði sex stig og gaf sjö stoðsendingar þegar San Pablo Inmobiliaria Burgos bar sigurorð af Club Mellila Baloncesto, 89-75. Ægir og félagar eru í 5. sæti deildarinnar með 11 stig. Ragnar Nathanaelsson skoraði einnig sex stig og tók fimm fráköst þegar Caceres Petrimonio De La Human vann Retabet á heimavelli, 73-58. Þetta var annar sigur Caceres í röð.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira