Handbolti

Ólafur Guðmunds skoraði beint úr aukakasti þegar leiktíminn var liðinn - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafur Guðmundsson.
Ólafur Guðmundsson. Vísir/EPA
Íslendingaliðið Kristianstad tapaði fyrir MOL-Pick Szeged, 29-21, í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta.

Ólafur Guðmundsson gerði fimm mörk í leiknum. Arnar Freyr Arnarsson gerði fjögur og Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt.

Staðan í hálfleik var 15-12 en þegar leiktíminn var liðinn í fyrri hálfleiknum fékk Kristiandstad aukakast úti á miðjum velli. Ólafur Guðmundsson skoraði beint úr aukakastinu, hreint ótrúlegt mark sem sjá má hér að neðan.

Kristianstad hefur aðeins náð í einn sigur í B-riðlinum í Meistaradeildinni og er útlitið þar á bæ svart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×