Körfubolti

Frestað í Ásgarði

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hlynur Bæringsson og félagar þurfa að bíða í einn dag.
Hlynur Bæringsson og félagar þurfa að bíða í einn dag. vísir/anton brink
Leik Stjörnunnar og Tindastóls sem átti að fara fram í Domino's-deild karla í körfubolta í kvöld hefur verið frestað vegna verðurs.

Leikurinn átti að hefjast klukkan 19.15 í Ásgarði í Garðabæ en Skagfirðingar komast ekki í bæinn vegna veðurs.

Nýr leiktími er annað kvöld klukkan 18.00 en þrír leikir fara fram á morgun. Keflavík tekur á móti Grindavík og Þór fær Þór í heimsókn á AKureyri.

Tveir leikir fara fram í kvöld. ÍR fær KR í heimsókn í Seljaskóla og Snæfell og Skallagrímur eigast við í vesturlandsslag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×