Körfubolti

Margrét Rósa og Sara Rún skoruðu þriðjung stiga Canisius

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslensku landsliðskonurnar hjá Canisius háskólanum skoruðu 21 af 59 stigum liðsins í tapi fyrir Northeastern, 83-59, í bandaríska háskólaboltanum í kvöld.

Margrét Rósa Hálfdanardóttir var stigahæst í liði Canisius með 14 stig. Hún tók auk þess þrjú fráköst. Margrét Rósa hitti úr fimm af níu skotum sínum utan af velli og nýtti fjögur af sex vítum sínum.

Sara Rún Hinriksdóttir skoraði sjö stig, tók átta fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Hún hitti úr þremur af átta skotum sínum utan af velli.

Eftir jafnar upphafsmínútur náði Northeastern yfirhöndinni og lét forystuna sem liðið náði um miðjan 1. leikhluta aldrei af hendi.

Canisius var í miklum vandræðum í sókninni og skoraði t.a.m. aðeins níu stig í 2. leikhluta. Skotnýting liðsins var aðeins 37,5%.

Þetta var fyrsti leikur Canisius á tímabilinu en sá næsti er gegn St. Bonaventure á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×