Handbolti

Mikilvægur sigur hjá lærisveinum Rúnars

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar skoraði fjögur mörk gegn Erlangen.
Rúnar skoraði fjögur mörk gegn Erlangen. vísir/daníel
Balingen-Weilstetten, sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar, vann afar mikilvægan sigur á Melsungen, 29-25, á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Þetta var þriðji sigur Balingen í síðustu fimm leikjum en liðið er komið upp í 13. sæti deildarinnar með sjö stig.

Rúnar Kárason skoraði fjögur mörk fyrir Hannover-Burgdorf sem bar sigurorð af Erlangen, 30-25, á heimavelli.

Hannover er í 6. sæti deildarinnar en liðið hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum.

Rúnar skoraði tvö mörk úr fjórum skotum utan af velli og nýtti bæði vítaköstin sem hann tók.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×