Handbolti

Hollendingar flugu í úrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld. vísir/afp
Holland komst í kvöld í úrslitaleikinn á EM kvenna eftir öruggan sigur á Dönum, 26-22.

Leikurinn var í járnum framan af og í hálfleik var allt jafnt, 13-13.

Hollenska liðið tók öll völd á vellinum í síðari háfleik og lokaði fyrir allt aðgengi að marki sínu á meðan þær skoruðu að vild.

Holland skoraði fyrstu sex mörk síðari hálfleiks og náði þar með forskoti sem danska liðið náði aldrei að brúa.

Estevana Polman skoraði sjö mörk fyrir Holland í kvöld en Stine Jörgensen var atkvæðamest hjá Dönum með sex mörk.

Andstæðingur Hollendinga í úrslitaleiknum verður annað hvort Noregur eða Frakkland en þau mætast síðar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×