Handbolti

Ólafur markahæstur í jafnteflisleik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Íslendingatríóið hjá Kristianstad skilaði sínu í kvöld.
Íslendingatríóið hjá Kristianstad skilaði sínu í kvöld. vísir/hanna
Íslendingaliðin HK Malmö og Kristianstad gerðu jafntefli, 25-25, í hörkuleik í sænska boltanum í kvöld.

Ólafur Andrés Guðmundsson var markahæstur í liði Kristianstad með sex mörk. Arnar Freyr Arnarsson skoraði þrjú og Gunnar Steinn Jónsson eitt. Leó Snær Pétursson kom ekkert við sögu hjá Malmö.

Atli Ævar Ingólfsson skoraði fjögur mörk fyrir Sävehof sem valtaði yfir lið Karlskrona, 38-21.

Daníel Freyr Andrésson og félagar í Ricoh HK lögðu svo botnlið Ystad, 28-29. Daníel varði ekki skot að þessu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×