Handbolti

Löwen flaug í undanúrslitin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alexander í leik með Löwen.
Alexander í leik með Löwen. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen varð í kvöld síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar.

Ljónin átu þá lið Balingen á útivelli, 25-32, eftir að hafa verið sjö mörkum yfir í hálfleik, 10-17.

Alexander Petersson skoraði fimm mörk úr sjö skotum fyrir Löwen en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum.

Auk Löwen eru Kiel, Flensburg og Leipzig komin í undanúrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×