Handbolti

Holland í undanúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hollensku stelpurnar fagna í dag.
Hollensku stelpurnar fagna í dag. vísir/afp
Holland varð í dag annað liðið sem tryggir sig inn í undanúrslitin á EM kvenna í handbolta.

Holland lagði þá Spánverja, 29-24. Sigurinn var þó ekki eins öruggur og lokatölurnar gefa til kynna. Jafnt var á með liðunum þar til á lokamínútunum er Holland stakk af.

Það verður svo annað hvort Frakkland eða Þýskaaland sem fylgir Hollandi áfram upp úr milliriðli I en þau spila á eftir. Svíþjóð gegn Þýsklandi en Frakkland gegn Serbíu.

Ungverjaland og Rússland gerðu svo jafntefli, 26-26, í milliriðli II en sá leikur skipti engu máli þar sem hvorugt liðanna átti möguleika á því að komast í undanúrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×