Handbolti

Neagu skaut Tékka í kaf

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Neagu í leiknum í dag.
Neagu í leiknum í dag. vísir/afp
Rúmenía á ansi góða möguleika á því að komast í undanúrslit á EM kvenna í handbolta eftir góðan sigur, 30-28, á Tékkum í dag.

Rúmenía er því komið með sex stig í milliriðli II. Það eru jafnmörg stig og Noregur sem á leik á eftir.

Danmörk getur einnig komist í sex stig takist liðinu að leggja Rússland í kvöld. Danmörk og Rúmenía mætast svo í lokaumferð milliriðilsins. Það verður væntanlega úrslitaleikur um sæti í undanúrslitum.

Hin magnaða Cristina Neagu skoraði tíu mörk fyrir Rúmeníu í dag en Iveta Luzumova skoraði sjö mörk fyrir Tékka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×