Vinirnir mætast í kvöld og skjóta vel hvor á annan í ruslatali fyrir leikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2016 13:45 Ægir Þór Steinarsson og Ragnar Nathanaelsson. Vísir/Andri Marinó og Stefán
Íslendingaslagur verður í spænska körfuboltanum í kvöld þegar vinirnir Ægir Þór Steinarsson og Ragnar Nathanaelsson mætast með liðum sínum í spænsku b-deildinni. Ægir Þór er leikstjórnandi hjá liði Burgos en Ragnar miðherji hjá liði Cáceres. Þeir hafa spilað saman bæði með A-landsliðinu sem og í yngri landsliðum. Burgos-liðinu hefur gengið betur í vetur en liðið er í 4. sætinu með tíu sigra en lið Cáceres er í 11. sæti með sjö sigra. Karfan.is hafði samband við íslensku strákana og þar voru vinirnir alveg til í að skjóta vel á hvorn annan fyrir leik þeirra í kvöld. Ruslatalið þeirra var af skrautlegri gerðinni en örugglega allt í gríni. „Eitt veit ég og það er að þeir klúðruðu nokkuð hressilega sinni „scout“ vinnu á Nat-vélinni. Annars er svo kalt hérna uppfrá að ég get ekki beðið eftir að komast heim með sigurinn á bakinu,“ segir Ragnar í viðtalinu við karfan.is. Hann bendir einnig réttilega á því að hans lið hafi spilað í ACB-deildinni en ekki lið Ægis. Ægir svaraði þessu fullum hálsi. „Þetta eru svo sem engin geimvísindi ég verð þarna niðri á blokkinni að pósta Ragnar, eitt „pump fake“ og Raggi er farinn. Þetta eru auðveld tvö stig allt kvöldið. Raggi er vissulega skráður 214 cm á hæðina en fæstir vita að drengurinn rétt skríður í tvo metrana,“ segir Ægir í viðtalinu við karfan.is. Hann bætti síðan við: „Sólstrandargæjarnir í Cáceres munu frjósa hérna fyrir norðan.“ Ragnar lofar aftur á móti að troða yfir Ægi í leiknum sem verður að koma í ljós hvort takist hjá þeim. Það er hægt að finna allt viðtalið við þá og sprellið með því að smella hér. Ragnar fær vonandi að spila meira í kvöld en í fyrri leikjum liðsins í vetur en íslenski miðherjinn er með 1,9 stig og 1,6 fráköst að meðaltali á 7,1 mínútu í leik. Ægir er með 5,1 stig og 3,9 stoðsendingar að meðaltali á 20,5 mínútum með liði Cáceres.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira