Körfuboltamaður missti augað í miðjum leik: „Ég gat enn þá séð með auganu“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. janúar 2017 11:00 Akil Mitchell leiddur af velli með augað úti á kinn. vísir/getty
Bandarískur körfuboltamaður að nafni Akil Mitchell er á batavegi og líður vel eftir að annað auga hans hrökk úr augntóftinni í miðjum leik í gær. BBC greinir frá. Mitchell spilar með New Zealand Breakers í Nýja-Sjálandi en hann varð fyrir því óláni að fá fingur mótherja síns í augað með þeim afleiðingum að augað hrökk úr augntóftinni. Bandaríkjamaðurinn féll til jarðar og hélt um andlitið áður en honum var komið á sjúkrahús. „Ég fann fyrir auganum á hlið andlitsins. Ég gat enn þá séð út úr auganu. Ég man að ég hugsaði: „Þetta er frekar slæmt.“ Ég fann fyrir því að augað var ekki á réttum stað og því leið mér ekki vel,“ segir Mitchell í viðtali við nýsjálenska fjölmiðla. Mitchell segist muna eftir viðbrögðum áhorfenda og hinna leikmannanna þegar atvikið átti sér stað. Hann hélt að hann myndi aldrei sjá aftur. „Þegar ég kom í sjúkrabílinn var mér gefið verkjalyf og augndropar og svo fann ég fyrir því að auganum var rennt aftur á sinn stað. Það var skrítin tilfinning. Það var svo gott að geta blikkað augunum aftur sem er alveg geðveikt,“ segir Mitchell. Bandaríkjamaðurinn sló á léttu strengina á Twitter-síðu sinni þar sem hann setti emoji af tveimur augum og spurði: „Of snemmt?“ Hann sagðist sjá vel en væri á leið í frekari rannsóknir. Búist er við að Akil Mitchell nái sér að fullu og byrji að spila aftur fljótlega.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira