Handbolti

Sjö mörk Örnu Sifjar dugðu ekki til

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arna Sif skoraði sjö mörk úr níu skotum.
Arna Sif skoraði sjö mörk úr níu skotum. vísir/ernir
Arna Sif Pálsdóttir skoraði sjö mörk þegar Nice steinlá, 20-28, fyrir botnliði Celles í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Nice er í vandræðum þessa dagana en liðið hefur tapað þremur leikjum í röð og situr í tíunda og næstneðsta sæti deildarinnar.

Arna Sif spilaði nær allan leikinn og skoraði sjö mörk úr níu skotum. Hún var markahæst í liði Nice.

Það gekk ekki jafn vel hjá Karen Knútsdóttur. Landsliðsfyrirliðinn skoraði tvö mörk úr níu skotum í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×