Sandra Lind með sinn besta leik í mikilvægum sigri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. febrúar 2017 17:30 Sandra Lind Þrastardóttir. Vísir/Ernir
Íslenski landsliðsmiðherjinn Sandra Lind Þrastardóttir var í stóru hlutverki í mikilvægum útisigri í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Sandra Lind skoraði 13 stig þegar Hörsholm 79ers vann 68-60 sigur á BK Amager. Hún var bæði næststigahæst og með næsthæsta framlagið í sínu liði. Þetta var þriðji sigur Hörsholm 79ers liðsins í röð og tólfti sigurinn í sextán leikjum á tímabilinu. Liðið er í 2. sæti, fjórum stigum á eftir toppliði Virum GO DREAM. BK Amager er nú sex stigum á eftir Söndru Lind og félögum en hefðu getað minnkað forystuna í tvö stig með sigri. Sandra Lind var auk stiganna með 5 fráköst, 3 stolna bolta og 1 stoðsendingu. Hún hitti úr 4 af 9 skotum sínum utan af velli og svo úr 5 af 6 vítum sínum. Þrettán stig er það mesta sem Sandra Lind hefur skorað í einum leik í dönsku deildinni í vetur en hún er á sínu fyrsta ári hjá liðinu. Sandra Lind er 21 árs gömul og var orðin fyrirliði Keflavíkurliðsins í fyrravetur. Hún hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu að undanförnu. Sandra Lind skoraði 10 stig í sigri á Lemvig Basket í fyrsta leik ársins en bætti þann árangur núna. Sandra Lind hefur verið að hækka meðalskor sitt með hverjum mánuði og er að komast betur inn í þetta hjá Hörsholm 79ers sem lofar góður fyrir lokasprettinn.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira