Fótbolti

Sigur hjá Kristianstad

Smári Jökull Jónsson skrifar
Gunnar Steinn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson léku með Kristianstad í kvöld en Ólafur Guðmundsson kom ekkert við sögu.
Gunnar Steinn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson léku með Kristianstad í kvöld en Ólafur Guðmundsson kom ekkert við sögu. vísir/hanna
Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt mark fyrir Kristianstad sem lagði Skövde í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Kristianstad var í 4.sæti fyrir leikinn en Skövde í 9.sæti. Fyrri hálfleikur var fremur jafn og hafði Kristianstad þriggja marka forystu í leikhléi, 16-13.

Í síðari hálfleiknum tóku heimamenn hins vegar völdin. Þeir náðu fljótlega 8 marka forystu og eftir það var aldrei spurning hvar sigurinn myndi lenda.

Lokatölur urðu 34-26 og Kristanstad lyftir sér þar með upp í 2.sæti deildarinnar og er einu stigi á eftir toppliði Alingsås.

Gunnar Steinn skoraði 1 mark fyrir Kristanstad en Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað. Ólafur Guðmundsson kom ekki við sögu hjá liðinu í kvöld en hann hefur átt við meiðsli að stríða.

Geir Guðmundsson kom ekkert við sögu hjá Rennes sem 31-25 vann sigur á Ivry í frönsku deildinni. Þá á Guðmundur Hólmar Helgason við meiðsli að stríða og verður frá í töluverðan tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×