KR-liðið hefur unnið fyrsta leikinn í tíu seríum í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2017 16:30 Brynjar Þór Björnsson, fyrirliði KR. Vísir/Anton
Íslandsmeistarar KR tekur á móti Keflavík í DHL-höllinni klukkan 19.15 í kvöld í fyrsta leik undanúrslitaeinvígis liðanna í úrslitakeppni Domino´s deild karla í körfubolta. Leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni á Stöð 2 Sport eins og allir leikir úrslitakeppninnar hér eftir. KR vann alla þrjá leiki sína á móti Þór Akureyri í átta liða úrslitum en hefur ekki spilað í níu daga. Keflvíkingar tryggðu sér sæti í undanúrslitunum fyrir sex dögum síðan. KR-ingar hafa ekki tapað seríu í úrslitakeppni í fjögur ár og í öllum þessum seríum hefur KR-liðið komist í 1-0. KR er þannig búið að vinna fyrsta leikinn í tíu seríum í röð í úrslitakeppninni. KR tapaði síðast fyrsta leik í undanúrslitum á móti Grindavík vorið 2013. Grindavík vann einvígið 3-1 og fór síðan alla leið og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. KR-ingar hafa spilað alla þessa tíu opnunarleiki einvíganna á heimavelli sínum í Frostaskjólinu og svo verður einnig í kvöld. KR vann Njarðvík í fyrsta leik undanúrslitanna í fyrra eftir tvíframlengdan leik og lenti einnig í framlengingu í fyrsta leik á móti Stjörnunni í fyrsta leik undanúrslitanna árið 2014. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir hvernig þessir leikir KR hafa farið undanfarin ár.Fyrsti leikur KR-liðsins í síðustu tíu seríum í úrslitakeppni:2014 8 liða úrslit: 22 stiga sigur á Snæfelli (98-76) - 3-0 Undanúrslit: 3 stiga sigur á Stjörnunni í framlengingu (94-91) - 3-1 Lokaúrslit: 9 stiga sigur á Grindavík (93-84) - 3-12015 8 liða úrslit: 6 stiga sigur á Grindavík (71-65) - 3-0 Undanúrslit: 17 stiga sigur á Njarðvík (79-62) - 3-2 Lokaúrslit: 20 stiga sigur á Tindastól (94-74) - 3-12016 8 liða úrslit: 18 stiga sigur á Grindavík (85-67) - 3-0 Undanúrslit: 2 stiga sigur á Njarðvík í framlengingu (69-67) - 3-2 Lokaúrslit: 30 stiga sigur á Haukum (91-61) - 3-12017 8 liða úrslit: 31 stigs sigur á Þór Ak. (99-68) - 3-0
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira