Flottustu tilþrifin frá fyrsta ári Jóns Axels í Davidson | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júní 2017 10:45 Jón Axel Guðmundsson skorar hér á móti Norður-Karólínuskólanum sem vann síðan háskólatitilinn í ár. Vísir/Getty
Þetta var stórt ár á körfuboltaferli Grindvíkingsins Jóns Axel Guðmundssonar en hann steig þá bæði sín fyrstu skref í bandaríska háskólaboltanum og með íslenska A-landsliðinu. Jón Axel lék sitt fyrsta tímabil með Davidson-skólanum en hann var áður búinn að stimpla sig inn með Grindavík í Domino´s deildinni. Davidson-skólinn er þekktastur fyrir það að þar lék bandaríski bakvörðurinn Steph Curry áður en hann fór í NBA-deildina. Curry er eins og er tveimur sigurleikjum frá því að verða NBA-meistari með Golden State Warriors. Nú er það hinsvegar íslenski bakvörðurinn sem er að raða niður körfununum með Davidson-skólanum. Jón Axel spilaði 31 af 32 leikjum Davidson á tímabilinu en hann var fjórði stigahæsti leikmaður liðsins og annar í stoðsendingum og stolnum boltum. Ein flottasta tölfræði hans var þó að vera í byrjunarliðinu í 29 af 31 leik og spila 31,8 mínútur að meðaltali í leik. Jón Axel var með 8,2 stig, 4,0 fráköst, 3,5 stoðsendingar og 1,1 stolinn bolta að meðaltali í leik. Það má sjá alla tölfræði hans hér. Nú er búið að taka saman myndband með brot af því besta hjá Jóni á hans fyrsta tímabili með Davidson-skólanum. Það má sjá þetta myndband hér fyrir neðan.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira