Slæmur endakafli og tap á móti Andorra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2017 14:52 Jón Axel Guðmundsson. Mynd/KKÍ
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði sínum öðrum leik á Smáþjóðaleikunum í San Marinó í dag þegar strákarnir töpuðu í spennuleik á móti Andorra. Andorra vann leikinn 83-81 eftir að hafa unnið fimm síðustu mínútur leiksins 18-9. Jón Axel Guðmundsson átti mjög flottan leik og skoraði 24 stig á 30 mínútum fyrir íslenska liðið. Það dugði hinsvegar ekki til. Miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason var með tvennu þriðja leikinn í röð en í dag var kappinn með 12 stig og 10 fráköst á 24 mínútum. Íslenska liðið er nú ekki líklegt til að komst upp á pall á mótinu en liðið á enn eftir að mæta Svartfjallalandi og Lúxemborg. Íslenska liðið tapaði fyrsta leik sínum á móti Kýpur en hann var spilaður innan við hálfum sólarhring eftir að íslensku strákarnir mættu til San Marinó eftir 48 tíma martraðarferðalag. Strákarnir náðu síðan að vinna sannfærandi sigur á heimamönnum í leik tvö í gær. Íslenska liðið var einu stigi undir í hálfleik, 49-48. Íslenskur strákarnir lentu 9-3 undir og voru örlítið á eftir allan fyrri hálfleikinn. Íslenska liðið endaði þriðja leikhlutann vel og var síðan sjö stigum yfir, 72-65, þegar fimm mínútur voru eftir. Andorramenn skoruðu þá níu stig í röð og komust yfir í 74-72. Kári Jónsson setti niður þrist sem kom íslenska liðinu aftur yfir, 75-74, en Andorra átti alltaf svar og liðin skiptust á því að vera með forystuna á lokamínútunni. Andorra var hinsvegar sterkara liðið í spennunni í lokin og landaði sigri. Þetta var annar sigur liðsins en Andorra vann San Marinó en tapaði illa fyrir Svartfjallalandi.Atkvæðamestir í íslenska liðinu í leiknum: Jón Axel Guðmundsson 24 stig, 6 fráköst Tryggvi Snær Hlinason 12 stig, 10 fráköst Kári Jónsson 11 stig Gunnar Ólafsson 11 stig Kristófer Acox 10 stig, 9 fráköst Pétur Rúnar Birgisson 6 stig Kristinn Pálsson 3 stig Maciek Baginski 3 stig Emil Karel Einarsson 1 stig
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira