Körfubolti

Tveir úrvalsdeildarslagir í fyrstu umferð Maltbikars karla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fyrirliðar liðanna fjögurra sem kepptu í undanúrslitum Maltbikarskeppni karla á síðasta tímabili. Frá vinstri eru Benedikt Blöndal, Val, Þorleifur Ólafsson, Grindavík, Emil Karel Einarsson, Þór, og Brynjar Þór Björnsson, KR.
Fyrirliðar liðanna fjögurra sem kepptu í undanúrslitum Maltbikarskeppni karla á síðasta tímabili. Frá vinstri eru Benedikt Blöndal, Val, Þorleifur Ólafsson, Grindavík, Emil Karel Einarsson, Þór, og Brynjar Þór Björnsson, KR. Fréttablaðið/Eyþór
Bikarmeistarar KR fara á framandi slóðir í 32 liða úrslitum Maltbikars karla í körfubolta en liðið mætir þá Kormáki á Hvammstanga.

Það verða tveir innbyrðisleikir hjá liðum í Domino´s deild karla í 32 liða úrslitunum en það eru leikir Stjörnunnar og Hauka annarsvegar og Tindastóls og Þórs Þ. hinsvegar.

Þórsarar hafa komist í bikarúrslitaleikinn undanfarin tvö ár en fá nú gríðarlega erfiðan útileik á móti Tindastólsliðinu í fyrstu umferð.

34 lið eru skráð til leiks í Maltbikarinn í ár. Dregið var áður í forkeppni úrslitanna en þá eru neðri deildar lið dregin saman og kom það í hlut þessara félaga að leika í forkeppni sem fer fram í næstu viku.

Ármann - KV

Reynir S. - Stjarnan-b

Eftirtalin lið drógust síðan saman í 32 liða úrslitum Maltbikarsins en leikið verður dagana 14. Til 16. október næstkomandi.

Stjarnan - Haukar

FSu - Grindavík

Hamar - ÍR

Njarðvík-b - Skallagrímur

Sindri - Vestri

Haukar-b - Þór Akureyri

Leiknir R. - Njarðvík

Reynir S. eða Stjarnan-b úr forkeppni - Fjölnir

Kormákur - KR

ÍA - Höttur

ÍB - Valur

Álftanes - Snæfell

Vestri-b - KR-b

Gnúpverjar - Breiðablik

Ármann eða KV úr forkeppni - Keflavík

Tindastóll - Þór Þorlákshöfn

Það voru þeir Birgir Sverrisson, starfsmaður lyfjanefndar ÍSÍ og Stefán Þór Borgþórsson, mótastjóri KKÍ, sem sáu um dráttinn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×