Jón Arnór fór líka í speglun á hné | Spilar ekki fyrir áramót Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2017 20:51 Jón Arnór Stefánsson. Vísir/Anton
Jón Arnór Stefánsson mun annað tímabilið í röð ekkert spila með KR-liðinu í Domino´s deildinni fyrir áramót. Jón Arnór meiddist á nára í Meistarakeppni KKÍ en hafði áður verið að glíma við nárameiðsli í aðdraganda Eurobasket mótsins í haust. Jón Arnór gat spilað alla leikina úti í Helsinki en meiddist í þriðja leik með KR en hann hafði áður spilað mjög vel með KR í Evrópukeppninni. Það var ljóst að Jón Arnór yrði frá í einhvern tíma og vitandi það að nárameiðslin myndu halda honum frá keppni og æfingum næstu mánuði þá ákvað Jón Arnór að slá tvær flugur í einu höggi. Jón Arnór staðfesti í sjónvarpsviðtali á Stöð 2 Sport að hann hafi einnig farið í speglun á hné. Jón Arnór missti af fyrri hluta síðasta tímabils vegna hnémeiðsla. Hann endurtekur leikinn núna en í fyrra kom hann mjög sterkur inn eftir áramót og hjálpaði KR-liðinu að vinna tvöfalt auk þess að vera kosinn besti leikmaður bikarúrslitaleiksins, besti leikmaður lokaúrslitanna og besti leikmaður tímabilsins. „Ég er að bæta fjórum árum við ferilinn með því að fara í þessa speglun,“ sagði Jón Arnór Stefánsson í viðtali við Svala Björgvinsson í hálfleik á sjónvarpsútsendingu Stöð 2 Sport frá leik Stjörnunnar og KR í Domino´s deild karla.
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira