Tryggvi með sinn besta leik í Euroleague í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2017 21:07 Tryggvi Snær Hlinason í leiknum í kvöld. Vísir/EPA
Íslenski landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason var í stóru hlutverki í kvöld í Meistaradeild Evrópu í körfubolta eða Euroleague eins og keppnin heitir. Spænska liðið Valencia, sem Tryggvi leikur með, varð reyndar að sætta sig við þriggja stiga tap á útivelli á móti Maccabi Fox Tel Aviv frá Ísrael, 94-91, eftir jafnan og spennandi leik. Tryggvi kom mikið við sögu og átti sinn besta leik í þessari sterkustu körfuboltadeild Evrópu en hann skoraði átta stig á rúmum fjórtán mínútum í leiknum. Þetta var áttunda tap spænska liðsins í Euroleague á tímabilinu en Valencia liðið hefur aðeins náð að vinna þrjá af ellefu leikjum sínum. Tryggvi hefur verið að kíkja inná í nokkrum leikjum Valencia í Euroleague í vetur en nú kom Tryggvi við sögu frá fyrsta leikhluta. Tryggvi nýtti 4 af 6 skotum sínum en hann var einnig með 2 varin skot, 2 fráköst og 3 fiskaðar villur. Tryggvi hefur nú alls spilað í rétt tæpar 36 mínútur í Euroleague á tímabilinu eða næstum því heilan leik. Á þeim tíma hefur Tryggvi skoraði 14 stig, tekið 7 fráköst og varið 6 skot.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira