Fyrst Jordan og nú var Steph Curry á fremsta bekk þegar að Jón Axel fór á kostum Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. desember 2017 09:00 Jón Axel Guðmundsson er að standa sig fyrir framan þá bestu í sögunni. vísir/getty
Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfubolta, fór á kostum fyrir lið sitt Davidson Wildcats í efstu deild bandaríska háskólakörfuboltans í nótt þegar að Villikettirnir unnu VMA Keydets á heimavelli, 74-51. Jón Axel skoraði 22 stig, tók sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar á 35 mínútum en hann var stigahæstur á vellinum í þessum góða sigri. Davidson er búið að vinna alla þrjá heimaleiki sína og er í heildina búið að vinna fjóra leiki af sjö. Sjálfur Steph Curry, einn besti leikmaður heims og ofurstjarna meistaraliðs Golden State Warriors, var í húsinu og sá Jón Axel fara á kostum en Curry mætti á hækjum og settist á fremsta bekk á sínum gamla heimavelli.Belk Arena has a special visitor tonight! #Section30#CatsAreWildpic.twitter.com/07lIEdO8jd — Davidson Basketball (@DavidsonMBB) December 6, 2017 Curry er frægasti leikmaður í sögu Davidson-skólans og kíkti á strákana sem nú halda uppi heiðri skólans síns, en Curry sneri sig á ökkla í síðasta leik Golden State og verður frá næstu vikurnar. Þetta er annar leikurinn í röð sem NBA-ofurstjarna sér Jón Axel spila frábærlega en sá besti allra tíma, Michael Jordan, var í húsinu þegar að Davidson tapaði fyrir North Carolina um helgina. Þá skoraði Jón Axel 19 stig, tók sex fráköst og gaf sex stoðsendingar í tíu stiga tapleik en UNC hefur um langa hríð verið eitt albesta lið bandarísku háskólakörfunnar. Jón Axel er búinn að spila mjög vel á tímabilinu fyrir Davidson. Hann er að skora 16,3 stig, taka 5,8 fráköst og gefa sex stoðsendingar að meðaltali á 33 mínútum í hverjum leik.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira