Stjórn FIBA Europe yfirgaf Seljaskóla í seinni hálfleik: Kláruðu leikinn á appinu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 23. mars 2018 14:45 Leikurinn í Seljaskóla í gær var mikil skemmtun Vísir/Andri Marinó
Stjórn FIBA Europe er á landinu vegna fundarhalda og voru stjórnarmeðlimir heiðursgestir á leik ÍR og Stjörnunnar í úrslitakeppni Domino's deildar karla í gær. Athygli vakti að stjórnin yfirgaf leikinn í seinni hálfleik þrátt fyrir að mikil spenna hafi verið í leiknum. ÍR sigraði leikinn 67-64 og er með 2-1 forystu í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ og stjórnarmeðlimur FIBA Europe, var með í för og þegar Vísir heyrði í honum í dag sagði hann ferðalangana einfaldlega hafa verið svanga. „Þau voru orðin mjög svöng og þreytt, voru mörg að koma í gær, og langaði bara að fara að borða.“ Hannes sagðist sjálfur hafa verið með hnút í maganum yfir því að yfirgefa leikinn áður en honum lauk, en þetta sé víst algengt erlendis að heiðursgestir yfirgefi leiki snemma. Aðspurður á léttu nótunum hvort stjórnarmeðlimum hafi ekki bara einfaldlega blöskrað við íslenskum körfubolta sagði Hannes það af og frá. „Þeim fannst mjög gaman og hin besta skemmtun. Í rútunni þegar við fórum til baka vorum við að horfa á restina í 365 appinu,“ sagði Hannes. Þegar Vísir hitti á Hannes var stjórnin á leiðinni til Reykjavíkur eftir að hafa farið hinn klassíska „Gullna hring“ þar sem gestum var boðið upp á íslenska tómatsúpu og stjórnarmeðlimir fengu íslenskt lambakjöt í gærkvöldi. Eins og áður segir er stjórnin á Íslandi vegna fundarhalda og verður fundað allan daginn á morgun. Á meðal stjórnarmeðlima er fyrrum NBA leikmaðurinn Andrei Kirilenko.
Körfubolti Tengdar fréttir Andrei Kirilenko til Íslands vegna stjórnarfundar FIBA Europe Stjórnarfundur evrópska körfuknattleikssambandsins, FIBA Europe, fer í Reykjavík um næstu helgi. 21. mars 2018 16:30 „Stjórn FIBA horfir á Taylor taka viljandi högg í hnakkann á Hlyni“ Hrafn Kristjánsson var vægast sagt ósáttur með dómara leiks ÍR og Stjörnunnar í Seljaskóla í kvöld. ÍR hafði 67-64 sigur í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Domino's deildarinnar. 22. mars 2018 21:34 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari 2024 Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Andrei Kirilenko til Íslands vegna stjórnarfundar FIBA Europe Stjórnarfundur evrópska körfuknattleikssambandsins, FIBA Europe, fer í Reykjavík um næstu helgi. 21. mars 2018 16:30
„Stjórn FIBA horfir á Taylor taka viljandi högg í hnakkann á Hlyni“ Hrafn Kristjánsson var vægast sagt ósáttur með dómara leiks ÍR og Stjörnunnar í Seljaskóla í kvöld. ÍR hafði 67-64 sigur í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Domino's deildarinnar. 22. mars 2018 21:34