Handbolti

Teitur skoraði sex í tólf marka sigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Teitur Örn Einarsson
Teitur Örn Einarsson hsí
Svíþjóðarmeistarar Kristianstad unnu öruggan sigur á Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Teitur Örn Einarsson átti stórgóðan leik fyrir Kristianstad með sex mörk og þrjár stoðsendingar. Hvorki Ólafur Guðmundsson né Arnar Freyr Arnarsson komust á blað í leiknum.

Leiknum lauk með 12 marka sigri Kristianstad 35-23 eftir að hafa leitt 16-9 í hálfleik.

Sigurinn styrkir stöðu Kristianstad á toppi deildarinnar, meisararnir eru nú með tveggja stiga forskot á Malmö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×