KR-ingar semja við bandarískan leikstjórnanda með ítalskt vegabréf Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. janúar 2019 10:45 Mike DiNunno. Vísir/Getty
Íslandsmeistarar KR hafa styrkt sig með nýjum erlendum leikmanni fyrir seinni hluta tímabilsins í Domino´s deild karla í körfubolta. KR mun tefla fram Mike DiNunno í næsta leik sínum sem er á móti Keflavík en þetta kemur fram á ruv.is. Mike DiNunno er Bandaríkjamaður, fæddur í Illinois fylki en hann er með ítalskt ríkisfang og má því spila á sama tíma og hinn bandaríski leikmaður KR-liðsins sem er Julian Boyd. Julian Boyd spilar mun nær körfunni en Mike DiNunno sem er leikstjórnandi og spilaði með tveimur skólum, Northen Illinois og Eastern Kentucky, í bandaríska háskólaboltanum frá 2008 til 2013. DiNunno var með 14,8 stig og 4,3 stoðsendingar að meðaltali í leik á lokatímabilinu sínu með Eastern Kentucky skólanum 2012-13. Mike DiNunno er nú orðinn 28 ára gamall en hann hefur náð sér í talsverða reynslu í Evrópu þar sem hann hefur spilað í Grikklandi, á Ítalíu, í Englandi og í Búlgaríu. KR-ingar hafa verið duglegir að bæta við sig leikmönnum að undanförnu en Helgi Már Magnússon spilaði líka sinn fyrsta leik með liðinu í sigrinum á Skallagrími í gær. Áður hafði KR bætt við sig Kristófer Acox og Finn Atla Magnússyni auk þess sem Pavel Ermolinskij lék nokkra leiki með liðinu í nóvember.
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira