Arnór: Ánægður með að hafa komið í Breiðablik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. mars 2019 21:21 Arnór fagnar með liðsfélögum sínum á góðri stundu í vetur vísir/daníel „
Það sem við viljum gera fyrst og fremst er að njóta þess að spila körfubolta og hafa gaman að þessu,“ sagði Arnór Hermannsson, leikmaður Breiðabliks, eftir tapleikinn gegn Val í Domino's-deild karla í kvöld. Með honum varð ljóst að Breiðablik spilar í 1. deildinni á næsta tímabili. „Mér fannst lokatölurnar í dag ekki gefa rétta mynd af leiknum. Þeir hittu mjög vel í lokin og það var lítið hægt að gera í því,“ sagði Arnór sem sagði þó meiri baráttuhug í Blikum í kvöld en í síðasta leik, þar sem Breiðablik tapaði stórt. Í kvöld vann Valur, 93-69, en Blikar náðu þó að hanga í gestunum fram í miðjan fjórða leikhluta. „Við höfum nýtt tíman síðan þá til að byggja okkur upp. Þetta hefur í raun verið eins og annað undirbúningstímabil. Við höfum farið yfir nokkur mál, ætlum að hætta að vera neikvæðir og einbeita okkur að því að spila vel fyrir hvorn annan,“ sagði Arnór. Breiðablik spilaði án bandarísks leikmanns í kvöld og munu gera áfram til loka tímabilsins. „Þetta er mikil ábyrgð fyrir okkar ungu leikmenn og áskorun. Ég held að þetta verði gaman.“ Arnór kom til Breiðabliks frá KR fyrir þessa leiktíð og hann sér ekki eftir því, þrátt fyrir allt. „Ég er mjög ánægður með þetta skref, þó svo að þetta hafi ekki farið eins og ég vildi. En hvað mig varðar þá fannst mér þetta mikilvægt skref að koma hingað og fá aðeins að spreyta mig.“
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: Breiðablik - Valur 69-93 │Blikar fallnir úr efstu deild Breiðablik er fallið úr Domino's-deild karla en það varð ljóst eftir tap liðsins gegn Val á heimavelli í kvöld. 3. mars 2019 21:45 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Leik lokið: Breiðablik - Valur 69-93 │Blikar fallnir úr efstu deild Breiðablik er fallið úr Domino's-deild karla en það varð ljóst eftir tap liðsins gegn Val á heimavelli í kvöld. 3. mars 2019 21:45