Stjörnumenn bæta við sig landsliðsmanni í körfunni: Gunnar í Garðabæinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2019 16:05 Gunnar Ólafsson og Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar. Vísir/Sigurjón
Stjarnan vann 43 stiga sigur á Íslandsmeisturum KR í síðustu umferð Domino´s deildar karla og í dag bættu Stjörnumenn landsliðsmanni við leikmannahóp sinn. Garðbæingar eru því til alls líklegir í körfuboltanum í vetur. Gunnar Ólafsson skrifaði í dag undir samning við Stjörnuna og fer því ekki aftur í Keflavík eins og margir bjuggust lið. Gunnar hefur verið að leita sér að liði eftir að hann missti samning sinn á Spáni. Gunnar gerði tveggja og hálfs árs samning við Stjörnuliðið og mun eflaust styrkja liðið í baráttunni í vetur. Hann var kynntur á blaðamannafundi í Mathúsi Garðabæjar í dag. Gunnar var í íslenska landsliðinu sem spilaði í undankeppni HM í haust. Hann hefur alls leikið átján landsleiki. Gunnar þekkir vel til nokkurra leikmanna Stjörnunnar því þeir Hlynur Bæringsson og Ægir Þór Steinarsson voru einnig með í landsleikjunum í haust. Gunnar lék í eitt tímabil með Keflavík eftir fjögurra ára dvöl hjá St. Francis háskólanum í Brooklyn en hann var einnig með Keflavík áður en hann fór út í skóla. Gunnar fór út í atvinnumennsku í haust og samdi þá við spænska liðið Oviedo CB í spænsku Gulldeildinni. Oviedo sagði hins vegar upp samningi hans í nóvember en bæði Gunnar og bandarískur leikmaður liðsins voru látnir fara. Gunnar spilaði 16,0 mínútur að meðaltali í átta leikjum með Oviedo CB og var í þeim með 3,0 stig, 0,5 fráköst og 0,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Gunnar var með 14,1 stig, 3,9 fráköst og 2,0 stoðsendingar að meðaltali með Keflavíkurliðinu í Domino´s deildinni í fyrravetur.
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira