Evrópuflakkari frá Litháen gerir tveggja ára samning við Þór Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2020 13:15 Adomas Drungilas spilaði fyrir yngri landslið Litháa á HM U19 á sínum tíma. Getty/Hannah Peters
Þór úr Þorlákshöfn hefur náð samkomulagi við stóran leikmann frá Litháen og mun hann spila með liðinu í Domino´s deild karla í körfubolta í vetur. Hafnarfréttir segja frá því að Þórsarar séu búnir að gera tveggja ára samning við Adomas Drungilas. Þórsarar binda samkvæmt frétt Hafnarfrétta vonir við að Adomas muni þétta raðirnar í kringum körfuna og vera leiðtogi innan liðsins þar sem hann býr yfir töluverðri reynslu úr atvinnumennsku. Adomas Drungilas heldur upp á þrítugsafmælið sitt í október en hann er 203 sentímetra strákur sem spilar bæði sem kraftframherji og miðherji. Adomas Drungilas spilaði síðast í sameiginlegri deild hjá Eistum og Lettum og var þá með fínar tölur hjá Tartu Ulikool/Rock sem er frá Eistlandi. Adomas Drungilas var með 16,4 stig, 9,5 fráköst og 3,1 stoðsendingu að meðaltali í leik og hitti úr yfir 40 prósent þriggja stiga skota sinna. Adomas Drungilas hefur verið að elta ævintýrin fyrir utan Litháen á síðustu tímabilum en Ísland verður sjöunda landið sem hann spilar í frá árinu 2016. Drungilas hefur síðan spilað í Austurríki, í Ungverjalandi, á Ítalíu, í Rúmeníu, í Frakklandi og nú síðast í Eistlandi.
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari 2024 Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira