Fótbolti

Jón Daði spilaði í ótrúlegum sex marka sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jón Daði er kominn til Bolton
Jón Daði er kominn til Bolton

Jón Daði Böðvarsson kom inn af varamannabekknum í ótrúlegum 6-0 sigri Bolton Wanderers á Sunderland.

Sunderland eygði þess von að tylla sér á topp ensku C-deildarinnar þegar liðið heimsótti Bolton í dag en Jón Daði gekk í raðir Bolton á dögunum og situr liðið í 14.sæti deildarinnar, ekki ýkja langt frá fallsvæðinu.

Bolton hafði hins vegar ævintýralega yfirburði yfir Sunderland í dag og fór að lokum svo að heimamenn unnu 6-0 sigur. Hreint ótrúlegar tölur.

Jón Daði hóf leik á varamannabekk Bolton en kom inná á 72.mínútu en þá var staðan 4-0 fyrir Bolton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×